Royal-Rjóma bollur með marsipan

Royal-Rjóma bollur með marsipan

Vatnsdeigsbollur uppskrift

80 g smjörlíki

2 dl vatn

100 g hveiti

⅓ tsk salt

2 egg

Setjið smjörlíki og vatn í pott og hitið þangað til smjörilíkið er bráðnað. Takið af eldavélinni og bætið við hveiti og salti. Setjið fyrst annað eggið og hrærið saman og loks hitt. Mótið bollur með tveimur matskeiðum á ofnplötu með bökunarpappír. Bakið við 180°C í um 20 mínútur eða þar til bollurnar eru orðnar gylltar á litinn. Það má alls ekki opna ofninn á meðan á bakstri stendur.

 

Royal-rjóma fylling

1/2 l rjómi

3 msk Royal karamellubúðingur

Hrátt marsipan í þunnum sneiðum

bláberjasulta.

Skerið vatnsdeigsbollurnar í tvennt. Stífþeytið rjómann, bætið við karamellubúðingi. Skerið marsípanið í þunnar sneiðar og raðið 2-3 ofan á neðri hlutann. Setjið ca 2 tsk á hverja bollu, sprautið karamellurjómanum yfir.

Dýfið bollu”lokinu” í súkkulaði og lokið bollunni.

 

Uppskrift fengin í láni frá Bolludagsbollur – vatnsdeigsbollur – Albert eldar