Hollar hafra- og bananamúffur

Hollar hafra- og bananamúffur

Hollar hafra- og bananamúffur

Hráefni
2 bollar hafrar
1 tsk Royal-lyftiduft
1 1/2 tsk kanill
1 bolli mjólk
2 vel þroskaðir bananar, stappaðir
2 msk olía
1 egg
2 tappar vanilludropar

Ofninn hitaður á blæstri í 180°

Uppskriftin er fengin að láni frá Gígju Sigríði Guðjónsdóttur

  1. Höfrum, Royal-lyftiduftinu og kanil blandað vel saman í skál.
  2. Í aðra skál er stöppuðum bönunum, vanilludropum, mjólk, olíu og eggi hrært saman.
  3. Vökvablöndunni er hellt út í hafrana og hrært vel.
  4. Deiginu er skipt niður í 10 form og inn forhitaðan í ofn á á blæstri í 180°C í 20-25 mínútur. Nota má álform, silikonform eða pappírsform.