Bollur með vanillu búðing & hindberjum

Bollur með vanillu búðing & hindberjum

Hráefni

500ml rjómi þeyttur
1 pakki Royal vanillu búðingur
1 lítri mjólk
200gr súkkulaði ( til að pensla bollurnar að ofan)
1 pakki Bollur
1 askja fersk hindber

Aðferð:

1) Blandið vanillu búðing saman við mjólkina og kælið
2) Byrjið á að þeyta rjóma
3) Takið hindberin og stappið þau aðeins og blandið við rjómann
4) Skerið bollurnar til helminga og setjið fyrst vanillu búðing í botninn, þar næst hindberja rjómann og svo smá kókosmjöl og lokið bollunni
5) Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og penslið súkkulaði á toppinn á bollunum og skreytið með ferskum hindberjum.

 

Uppskrift fengin í láni hjá Heimkaup.is