Súkkulaðiterta

Súkkulaðiterta

Súkkulaðiterta

Botn
2.5 dl hveiti
2 dl. sykur
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk Royal-lyftiduft
1/2 tsk salt
2.5 msk kakó
1 egg
1.5 dl léttmjólk
3/4 dl. matarolía
1 tsk vc

Súkkulaðikrem
1 msk. bráðið smjör
3 msk. kakó
3 dl. flórsykur
3-4 msk vatn
1/2 tsk vanilludropar

  1. Botn: Kveikið á ofninum og stillið á 180°C. Allt hráefni sett í skál og hrært saman með handþeytara (ekki hrærivél). Skiptið deiginu í tvö lítil tertuform. Bakið í miðjum ofni í 15-20 mínútur.
  2. Súkkulaðikrem: Bræðið smjörið við vægan hita. Bætið kakó, flórsykri, vatni og vanilludropum út í og hrærið saman. Smyrjið á kökubotnanna þegar þeir hafa kólnað.