Oreo ostakaka

Oreo ostakaka

Oreo ostakaka

1 pakki Royal-vanillubúðingur
1 bolli mjólk
1 tsk vanilludropar
1 peli rjómi (2,5 dl.)
200 g rjómaostur
1 bolli flórsykur
24 oreo kexkökur (ég notaði 32, sem eru 2 kassar)

  1. Þeytið saman búðingsduftið, mjólkina og vanilludropana og setjið í ískáp í 5 mínútur.
  2. Hrærið saman flórsykri og rjómaosti í annari skál.
  3. Þeytið rjómann og blandið síðan öllu saman í eina skál.
  4. Myljið oreokexið og setjið til skiptist í glerform oreokexið og ostakökublönduna, þannig að oreokex sé efst.
  5. Geymið í frysti og takið út 1,5 klst. áður en kakan er borin fram. Verði ykkur að góðu!